Við fylgjum þér skref fyrir skref

Við gætum hagsmuna þinna frá upphafi til enda og sjáum til þess að þú hljótir þær bætur sem þú átt rétt á.

01.

Tilkynna slys

Mikilvægt er að tilkynna slys sem fyrst til allra bótaskyldra aðila svo að bótaréttur glatist ekki. Við aðstoðum þig við að tilkynna slysið ef þörf er á.

02.

Gagnaöflun

Við sjáum um að afla nauðsynlegra gagna, þ.e.a.s. frá lögreglu, læknum eða öðrum meðferðaraðilum. Gagnaöflun í líkamstjónamálum lýkur þegar stöðugleikapunkti hefur verið náð sem er sá tími þegar læknar gera ekki ráð fyrir frekari bata vegna slyssins.

03.

Mat á afleiðingum

Þegar gagnaöflun er lokið verður að meta umfang tjóns sem hefur orðið, hversu miklar afleiðingar það hefur og er líklegt að það muni hafa. Við aðstoðum þig í gegnum matsferlið.

04.

Uppgjör

Við gætum hagsmuna þinna við uppgjör bóta og sjáum til þess að þú hljótir þær bætur sem þú átt rétt á.