Slys á sjó

Þeir sem slasast við vinnu á sjó eiga ríkan bótarétt óháð aðdraganda slyssins. Bótaréttur getur verið til staðar hjá tryggingafélagi og Sjúkratryggingum Íslands.

Bóka gjaldfrjálsan fund

Slys á sjó

Þeir sem slasast við vinnu á sjó eiga ríkan bótarétt óháð aðdraganda slyssins. Bótaréttur getur verið til staðar hjá tryggingafélagi og Sjúkratryggingum Íslands. Til að mynda getur varanleg örorka talist vera til staðar jafnvel þó ekki sé um óvinnufærni í venjulegum skilningi að ræða. Þá getur þú átt rétt til bóta þó þú hafir sjálfur valdið slysinu. Ef þú hefur orðið fyrir slysi er mikilvægt að tilkynna slysið sem fyrst til atvinnurekanda, Sjúkratrygginga Íslands og viðkomandi tryggingafélags. Þá er auk þess mikilvægt að fara í læknisskoðun strax við fyrsta tækifæri eftir að slysið hefur átt sér stað. Þú kannt að eiga rétt til bóta jafnvel þótt tjónið virðist smávægilegt. Alltaf er ráðlegt að leita réttar síns sem fyrst.

Ef þú ert í einhverjum vafa þá getur þú ráðfært þig við lögmenn Slysaréttar. Fyrsta viðtal hjá Slysarétti er þér að kostnaðarlausu og án skuldbindinga. Þóknun er að öllu leyti árangurstengd og bundin því skilyrði að þú hljótir bætur. Aðeins kemur til greiðslu þegar bætur hafa verið innheimtar. Ekki hika við að hafa samband við Slysarétt hafir þú orðið fyrir vinnuslysi á sjó. Það kostar ekkert að kanna rétt sinn.

Bæturnar

Þú getur átt rétt á greiðslu bóta vegna tímabundins tekjutaps, þjáninga, varanlegs miska og varanlegrar örorku sem og endurgreiðslu á útlögðum sjúkrakostnaði vegna slyssins.

Ferlið

Mikilvægt er að tilkynna sem fyrst um slys sem hefur átt sér stað svo bótaréttur glatist ekki. Við getum aðstoðað þig við það. Í framhaldinu aðstoðum við þig við öflun upplýsinga- og gagna um tjónið. Þegar öll gögn liggja fyrir fer fram mat á afleiðingum slyss en oftast líður a.m.k. eitt ár frá slysi þar til hægt er að meta afleiðingar þess. Við aðstoðum þig í gegnum matsferlið. Að því loknu fer bótauppgjör fram. Oftast næst samkomulag um bótauppgjör og sjáum við um að senda bótakröfu fyrir þig. Komi til ágreinings um bótaskyldu eða fjárhæð bóta sjáum við um að leita úrlausnar viðeigandi úrskurðarnefnda og/eða dómstóla.

 

Hafðu sambandVið finnum lausn
á þessu saman

Við skoðum öll mál og leggjum okkur fram við að veita faglega, trausta og hraða þjónustu. Ef þú hefur lent í slysi hvetjum við þig til að hafa samband sem fyrst og við komum málinu í farveg.

Bóka gjaldfrjálsan fund